Við viljum ítreka við félagsmenn okkar að góð umgengni í íbúðum og orlofshúsum félaganna skiptir gríðarlega miklu máli. Nýverið var kvartað yfir því að rusl var skilið eftir í forstofu blokkarinnar í Sóltúni þar sem félögin eiga 2 íbúðir. Félagsmönnum ber að þrífa íbúðirnar vel við brottför og fara með allt rusl með sér út úr húsinu og koma því í þar til gerða ruslageymslu fyrir utan. Svona frágangur er engum til sóma!