Skip to main content
VMF

Útilegukortið komið í hús

By April 5, 2019No Comments

Nú er Útilegukortið komið og geta félagsmenn keypt það á niðurgreiddu verði á skrifstofu félagsins. Fullt verð er 19.900 kr. en verð til félagsmanna er 13.000 krónur.

Nú er Útilegukortið komið og geta félagsmenn keypt það á niðurgreiddu verði á skrifstofu félagsins. Fullt verð er 19.900 kr. en verð til félagsmanna er 13.000 krónur.

Með því að kaupa kortið hjá félaginu geta félagsmenn því sparað verulega. Kortið veitir tveimur fullorðnum og fjórum börnum undir 16 ára aldri fría gistingu á 39 tjaldsvæðum samstarfsaðila Útilegukortsins í allt að 28 gistinætur á hverju starfsári þess. Engin takmörk eru fyrir því hve oft má koma á hvert tjaldsvæði innan gistináttanna 28 en einungis má gista í fjórar nætur samfellt í hvert skipti.
Útilegukortið gildir fyrir tjöld, tjaldvagna, fellihýsi, hjólhýsi og húsbíla.
Korthafar verða því að framvísa kortinu fyrir hverja nótt sem gist er á tjaldstæðinu og verður þá ein gistinótt strikuð út hverju sinni. Útilegukortið er í gildi eins lengi og tjaldsvæðin eru opin.
Ath! gistináttaskattur er ekki innifalinn í greiðslu með Útilegukortinu.
 

Nánar má lesa um kortið á heimasíðu þess

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com