Á fjórða tug aðila úr verkalýðshreyfingunni sótti í síðustu viku fræðslufund sem ASÍ stóð fyrir um upplýsinga- og kynningarmál. Fundurinn var einkum ætlaður því starfsfólki stéttarfélaganna sem sér um þennan málaflokk hjá sínum félögum. Fundinn sátu fyrir hönd skrifstofunnar Þórarinn Sverrisson og Arna Björnsdóttir.

Snorri Már Skúlason, deildarstjóri upplýsinga- og kynningarmála hjá ASÍ opnaði fundinn á stuttum inngangi áður en Sigurður Svansson sérfræðingur í samfélagsmiðlum fór yfir tækifærin í miðlun sem búa í Facebook. Hann rakti möguleika miðilsins auk þess að fara yfir 5 atriði varðandi samfélagsmiðla sem eru vinsælir í ár.
Í seinni hluta fundarins fór Bogi Ágústsson, fyrrverandi fréttastjóri RÚV, yfir stöðu íslenskra fjölmiðla, útbreiðslu þeirra, traust, almannaþjónustu, breytingar á fjölmiðlun, ógnanir, málsóknir vegna meintra meiðyrða og falskar fréttir. Hann ræddi einnig breytingar á fréttaöflun og dreifingu frétta og helstu vandamál sem við er að glíma í því efni.
Góður rómur var gerður að erindum Sigurðar og Boga.