Skip to main content
Aldan

Vel heppnaður ungliðafundur

By June 2, 2017No Comments

Starfgreinasamband Íslands stóð fyrir fundi fyrir ungt fólk á Hótel Laugarbakka í Miðfirði dagana 29. og 30. maí. Alls mættu 18 ungliðar á aldrinum 18 til 33 ára til fundarins, en öll eru þau félagsmenn aðildarfélaga SGS. Fulltrúar Öldunnar voru þau Karen Birna Ómarsson og Magnús Valur Axelsson.

Starfgreinasamband Íslands (SGS) stóð fyrir fundi fyrir ungt fólk. á Hótel Laugarbakka í Miðfirði dagana 29. og 30. maí. Alls mættu 18 ungliðar á aldrinum 18 til 33 ára til fundarins, en öll eru þau félagsmenn aðildarfélaga SGS. Fulltrúar Öldunnar voru þau Karen Birna Ómarsson og Magnús Valur Axelsson.

Dagskráin var fjölbreytt og umræður líflegar. Farið var yfir hvernig starfið í hreyfingunni fer fram, Ásbjörg Kristinsdóttir frá Landsvirkjun ræddi um verkefnastjórnun og mikilvægi þess skipuleggja verkefni sín vel og Stefán Pálsson fór yfir hvernig best væri á kosið að haga sér á fundum og fá sínu framgengt þar. Í lok fundarins hittu ungliðarnir formenn aðildarfélaga SGS og ræddu um væntingar sínar og þau mál sem þeim fannst að berjast ætti fyrir. Kjarasamningar og húsnæðismál voru þar efst á baugi.

Þetta var í annað sinn sem SGS stendur fyrir ungliðafundi á borð við þennan og miðað við ánægjuna og áhugann hingað til er ljóst að þessir fundir eru komnir til að vera. Það er vonandi flestir í þessum hópi eftir að láta af sér kveða innan verkalýðshreyfingarinnar í framtíðinni enda ungt fólk á uppleið með góðar hugmyndir.

Á heimasíðu SGS má sjá fleiri myndir frá fundinum.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com