Skip to main content

Stéttarfélögin í Skagafirði stóðu fyrir sinni árlegu hátíðardagskrá á alþjóðlegum baráttudegi verkafólks í gær.
Dagskráin fór fram í sal Fjölbrautaskólans og var hún að venju vel sótt.

Stéttarfélögin í Skagafirði stóðu fyrir sinni árlegu hátíðardagskrá á alþjóðlegum baráttudegi verkafólks í gær. Dagskráin fór fram í sal Fjölbrautaskólans og var hún að venju vel sótt.

Þórarinn Sverrisson formaður Öldunnar stéttarfélags setti hátíðina og Geirmundur Valtýsson spilaði af sinni alkunnu snilld á nikkuna undir borðhaldi en Kvenfélag Skarðshrepps reiddi fram dýrindis kaffiveitingar.

Ræðumaður dagsins var Drífa Snædal framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands og gerði hún nýgerða kjarasamninga að umræðuefni í ræðu sinni. Hér má lesa ræðu hennar í heild sinni.

Skagfirski Kammerkórinn flutti skemmtilegt safn af vorlögum sem áttu sannarlega vel við í góðviðrinu og að því loknu stigu nemendur Grunnskólans austan vatna á stokk. Sungin voru nokkur af frægustu Júróvisjónlögunum sem Íslendingar hafa sent í keppnina og ef flutningur íslensku keppendanna í ár verður eins skemmtilegur og þessi er nokkuð ljóst að keppnin verður haldin hér á landi að ári liðnu.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com