Skip to main content

Verðlagseftirlit ASÍ tók saman æfingagjöld í knattspyrnu hjá 16 íþróttafélögum víðsvegar um landið. Skoðuð var gjaldskrá hjá 4. og 6. flokki íþróttafélaganna.

Verðlagseftirlit ASÍ tók saman æfingagjöld í knattspyrnu hjá 16 íþróttafélögum víðsvegar um landið. Skoðuð var gjaldskrá hjá 4. og 6. flokki íþróttafélaganna. Til að verðlagseftirlitið gæti borið gjaldskrá félaganna saman var fundið út mánaðargjald fyrir vorönn, þar sem félögin hafa ekki samræmda uppsetningu á gjaldskrá fyrir eitt ár í senn, sum eru með árgjald, önnur annargjöld og jafnvel er búið að setja sölu á varningi eða vinnu við mót inn í gjaldskrána.

4. flokkur
Verðlagseftirlitið bar saman gjaldskrá fyrir 4. flokk eða 12 og 13 ára börn. Dýrast er að æfa hjá ÍA en þar kostar mánuðurinn 7.333 krónur eða 36.667 kr. fyrir 5 mánuði á vorönn.
Ódýrast er að æfa hjá KA en þar kostar mánuðurinn 4.667 krónur eða 23.333 kr. vorönnin. Verðmunurinn er 57% eða 13.333 krónur.

6. flokkur
Verðlagseftirlitið bar einnig saman gjaldskrá fyrir 6. flokk eða 8 og 9 ára börn. Dýrast er að æfa hjá ÍA en þar kostar mánuðurinn 6.667 krónur eða 33.333 kr. fyrir 5 mánuði á vorönn.
Ódýrast er að æfa hjá KA en þar kostar mánuðurinn 3.778 krónur eða 18.889 kr. vorönnin. Verðmunurinn er 76% eða 14.444 krónur.

Sem dæmi um árgjald fyrir 6. flokk á tímabilinu 1.október 2013 – 30.september 2014 þá kostar árið hjá Íþróttafélaginu Fylki 57.000 kr.,
hjá FH 62.000 kr.  og Breiðablik 69.800 kr. 
Árgjald fyrir árið 2014 hjá 4. flokki kostar 75.000 hjá Knattspyrnufélaginu Víkingi,  62.000 kr. hjá KR og  88.000 kr. hjá ÍA.

Auk þess ber að athuga að hér er aðeins um verðsamanburð að ræða og sú þjálfun sem er í boði á æfingum íþróttafélaganna er ekki metin.  Verðlagseftirlitið tekur heldur ekki tillit til fjáröflunar sem íþróttafélögin standa fyrir og eða styrkja frá sveitarfélögunum, og hvorki æfingagallar né keppnisgjöld eru með í gjaldinu sem borið er saman.

Sjá nánar á heimasíðu ASÍ.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com