Skip to main content

Mikill verðmunur er á smurþjónustu fyrir bíla að því er fram kemur í verðkönnun sem verðlagseftirlit ASÍ gerði hjá 29 þjónustuaðilum þann 23. október.

Mikill verðmunur er á smurþjónustu fyrir bíla að því er fram kemur í verðkönnun sem verðlagseftirlit ASÍ gerði hjá 29 þjónustuaðilum þann 23. október. Kannað var verð á þjónustu við fjórar stærðir bíla; smábíl, meðalbíl, jeppling og jeppa.
Barðinn og Sólning reyndust ódýrastir í þremur flokkum af fjórum. Mestur verðmunur á hæsta og lægsta verði var á jeppling, t.d. Suzuki Grand Vitara, rúmlega 9.420 krónur eða 323%.

Smurning fyrir smábíl var ódýrust á 2.475 kr. hjá Barðanum og Sólningu en var dýrust á 8.340 kr. hjá BL Kauptúni sem er 5.865 króna verðmunur eða 237%. Smurning fyrir meðalbíl var ódýrust á 2.475 krónur hjá Barðanum og Sólningu en var dýrust á 8.820 krónur hjá Öskju sem er 6.345 króna verðmunur eða 256%.

Mestur verðmunur á þessari þjónustu var fyrir jeppling sem var ódýrust kr. 2.920 hjá Barðanum og Sólningu en dýrust 12.340 kr. hjá Kraftbílum Akureyri sem er rúmlega 9.420 króna verðmunur eða 323%. Þjónusta við stóra jeppa var ódýrust á 3.600 kr. hjá Kvikkfix en dýrust á 12.340 kr. hjá Kraftbílum sem er 8.740 króna verðmunur eða 243%.

Verðkönnunin nær einungis til þjónustu smurstöðvanna og eru engin efni innifalin í verðinu.
Innifalið í uppgefnum verðum eru að lágmarki eftirtaldir liðir:

Skipti á olíu á vél,
skipti á olíusíu,
smurning á lömum,
athugun á loftsíu og rúðuvökva.

Benda má á að þjónuskoðun smurstöðva í smurningu er töluvert lengri en listin sem verðlagseftirlitið var með og suma bíla er flóknara að smyrja en aðra.

Max 1, Brimborg, Dekkjahöllin, Bifreiðaverkstæði Grafarvogs, Vélrás, Pústþjónusta BJB, Toyota bílaverkstæði Austurlandi, og Smur-, bón- og dekkjaþjónustan gerðu verðlagseftirlitinu ókleift að framkvæma verðkönnun.


Sjá nánar niðurstöður í töflu á heimasíðu ASÍ.

Hér er aðeins um beinan verðsamanburð á þjónustu að ræða en ekki var lagt mat á gæði söluaðila.

Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com