Skip to main content
Aldan

Verulegt tekjutap landverkafólks vegna innflutningsbanns

By September 17, 2015No Comments

Skýrsla Byggðastofnunar um byggðaleg áhrif innflutningsbanns Rússa var birt í gær, þann 16. september. Í henni koma fram gríðarleg áhrif á tekjur landverkafólks og hugsanlega tekjuskerðingu fólks sem vinnur við frystingu uppsjávarafla.

Skýrsla Byggðastofnunar um byggðaleg áhrif innflutningsbanns Rússa var birt í gær, þann 16. september. Í henni koma fram gríðarleg áhrif á tekjur landverkafólks og hugsanlega tekjuskerðingu fólks sem vinnur við frystingu uppsjávarafla.

Talið er að innflutningsbann Rússa á matvælaafurðir komi verst niður á Þórshöfn, Raufarhöfn, Vopnafirði, Neskaupstað, Eskifirði, Fáskrúðsfirði, Höfn, Vestmannaeyjum, Snæfellsbæ og Garði. Aðrar sjávarútvegsbyggðir verða fyrir litlum eða engum áhrifum.

Dregnar eru upp þrjár sviðsmyndir af hugsanlegum áhrifum þar sem mismikill hluti afurða sem fóru á Rússlandsmarkað er settur í bræðslu annars vegar og á nýja markaði hins vegar. Ljóst er að bannið kemur verulega niður á landverkafólki sem vinnur í frystingu og gæti tekjuskerðingin orðið á milli 1,1 milljón á ári til 2,4 milljónir á ári. Það þýðir í raun 18-40% tekjuskerðing hjá fólki sem hefur haft uppgrip af árstíðarbundinni frystingu uppsjávarafla. Á móti kemur að vegna aukinnar bræðslu þarf að bæta við starfsfólki, allt að 220 manns og tekjur þar aukast á bilinu 310-350 milljónir á ári. Tekjutap sveitarfélaga vegna lægri skattgreiðslna er verulegt.

Ekki einungis er um byggðabundin áhrif að ræða heldur einnig kynjabundin þar sem flestir starfsmenn í bræðslunum eru karlkyns og  fá þeir auknar tekjur en í frystingunni eru kynjahlutföllin jafnari. Tekjubreytingar hjá kynjunum koma því ólíkt niður ef ekki verða breytingar á kynjahlutföllum í bræðslu.

Í skýrslunni er ekki fjallað um áhrif á afleidd störf en ljóst er að mótvægisaðgerðir eru nauðsynlegar fyrir samfélög sem innflutningsbannið hefur hvað mest áhrif á. Starfsgreinasambandið hefur gert kröfu um að koma að þeirri vinnu sem nú fer í gang og lýtur að mótvægisaðgerðum.

Skýrsluna í heild sinni má lesa hér: http://www.byggdastofnun.is/static/files/Skyrslur/byggdaleg-ahrif-innflutningsbanns-russa-endanlegt.pdf

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com