Skip to main content
Aldan

Verulegur verðmunur á dekkjaskiptum

By October 25, 2013No Comments

Verðlagseftirlit ASÍ gerði verðkönnun á skiptingu, umfelgun og jafnvægisstillingu hjólbarða á 29 hjólbarðaverkstæðum víðsvegar um landið.

Verðlagseftirlit ASÍ gerði verðkönnun á skiptingu, umfelgun og jafnvægisstillingu hjólbarða á 29 hjólbarðaverkstæðum víðsvegar um landið.

Allt að 81% verðmunur á skiptingu, umfelgun og jafnvægisstillingu
Fyrsti vetrardagur er á morgun og því kominn tími til að setja vetrardekkin undir bílinn, en frá 1. nóvember er löglegt að aka um á nagladekkjum.  Verðlagseftirlit ASÍ gerði verðkönnun á skiptingu, umfelgun og jafnvægisstillingu hjá 29 hjólbarðaverkstæðum víðsvegar um landið síðastliðinn miðvikudag.


Mestur verðmunur í könnuninni var á þjónustu við dekkjaskipti á jeppa (t.d. Mitshubishi)  með 18″ álfelgum (265/60R18) sem var ódýrust á 7.157 kr. hjá Bifreiðaverkstæði S.B. á Ísafirði en dýrust á 12.980 kr. hjá N1, verðmunurinn var 5.823 kr. eða 81%.
Fyrir stálfelgu af sömu stærð er þjónustan ódýrust hjá Bifreiðaverkstæði S.B. á Ísafirði á 7.157 kr., en dýrust á 11.800 kr. hjá dekkjaverkstæðinu Kaldasel, verðmunurinn var 4.643 kr. eða 65%.


Minnstur verðmunur í könnuninni var á þjónustu við dekkjaskipti undir smábíl,  minni meðalbíl og meðalbíl á 14, 15 og 16″ stálfelgu (175/65R14, 195/65R15 og 205/55R16), sem var ódýrust á 4.990 kr. hjá Dekkjahúsinu Kópavogi, en dýrust á 6.950 kr. hjá Kletti, verðmunurinn var 1.960 kr. eða 39%.
Fyrir 14 og 15″ álfelgu er þjónustan ódýrust á 4.990 kr. hjá Dekkjahúsinu en dýrust á 7.590 kr. hjá N1, verðmunurinn var 2.600 kr. eða 52%.
Fyrir 16″ álfelgu er þjónustan ódýrust á 4.990 kr. hjá Dekkjahúsinu en dýrust á 7.980 kr. hjá N1, verðmunurinn var 2.990 kr. eða 60%.


Skipting, umfelgun og jafnvægisstilling fyrir jeppling (t.d. Toyota Rav) á 16″ álfelgum (225/70R16) var ódýrust á 5.990 kr. hjá Dekkjahúsinu Kópavogi en dýrust á 9.780 kr. hjá N1, verðmunurinn var 3.790 kr. eða 63%.
Fyrir bíl með stálfelgu af sömu stærð var þjónustan ódýrust á 5.990 kr. hjá Dekkjahúsinu en dýrust á 8.900 kr. hjá Kletti, verðmunurinn var 2.910 eða 49%.


12 hjólbarðaverkstæði með sama verð og í fyrra
Þegar verð fyrir fyrrgreinda þjónustu hjólbarðaverkstæða er borin saman við verðið í fyrra kemur í ljós að tólf verkstæðanna hafa ekki hækkað hjá sér verðið á þjónustu við dekkjaskipti á meðalbíl með 16″ álfelgu (205/55R16) síðan í október 2012.
Mesta hækkunin var hjá Gúmmívinnustofunni SP dekk 19% og þar á eftir kom hækkun hjá Vöku upp á 11%, einnig hefur verðið hækkað hjá Hjólbarðaverkstæði Sigurjóns og Kletti um 9%.


 Sjá nánar niðurstöður í töflu á heimasíðu ASÍ.


Max 1, Dekkjahöllin, Pústþjónusta BJB, Nesdekk, Gúmmívinnslan, Hjólbarðaþjónusta Magnúsar, Bílaverið, Bílaverkstæði Austurlands, Höldur Dekkjaverkstæði, Vélrás, Bifreiðaverkstæði Grafarvogs, Smur-, bón- og dekkjaþjónustan gerðu verðlagseftirlitinu ókleift að framkvæma verðkönnun.
 
Kannað var verð á þjónustu við dekkjaskiptingu, umfelgun og jafnvægisstillingu á álfelgum og stálfelgum af stærðum 14,15, 16 og 18″ á 29 hjólbarðaverkstæðum í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Garðabæ, Ísafirði, Akureyri, Egilsstöðum og Selfossi. Verðin í könnuninni eru án afsláttar en verkstæðin bjóða upp á margskonar afsætti t.d. FÍB, eldri borgara og staðgreiðslu og viðskiptavinir eru því hvattir til að spyrja um afslátt.


Hér er aðeins um beinan verðsamanburð á þjónustu að ræða en ekki var lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.


 Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com