Skip to main content
Aldan

Viðræðum slitið við Samband íslenskra sveitarfélaga

By November 12, 2015No Comments

Viðræðum við Samband íslenskra sveitarfélaga var slitið síðdegis í gær, þann 11. nóvember, og var deilunni vísað til ríkissáttasemjara.

Viðræðum við Samband íslenskra sveitarfélaga  var slitið síðdegis í gær, þann 11. nóvember. Viðræður hafa staðið yfir í haust en lítið hefur miðað í launamálum. Það vantar sameiginlegan skilning á þeim ramma sem unnið er út frá samkvæmt SALEK-samkomulaginu og að mati samninganefndar Starfsgreinasambandsins skortir samningsvilja hjá samninganefnd sveitarfélaganna.

Önnur atriði en launamálin hafa verið útkljáð að mestu og því stóðu vonir lengi til þess að hægt væri að klára samningana fljótt og örugglega þegar niðurstaðan í launamálin fengist. Þegar ljóst var að hún var ekki á næsta leiti var það sameiginlegt mat þeirra sem voru í samfloti í samningunum, þ.e. SGS, Flóabandalagsins og opinberu félaganna, að nauðsynlegt væri að vísa deilunni til ríkissáttasemjara.

Vonast er til að ríkissáttasemjari boði til fundar í deilunni strax eftir helgi og hægt sé að ná samningum undir verkstjórn hans.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com