Skip to main content
AldanVMF

Vörukarfa ASÍ hefur lækkað hjá sjö verslunum

By February 23, 2016No Comments

Vörukarfa ASÍ hefur lækkað hjá sjö verslunum frá því í september 2015 þar til nú í febrúar. Hjá sex verslunum hefur vörukarfan hækkað í verði, mest um 7,3% hjá 10/11. Mesta lækkunin á þessu tímabili er 3,8% hjá Hagkaupum og um 2% hjá Nettó, Iceland, Samkaupum-Úrval, Kaupfélagi Skagfirðinga og Kjarval. Á sama tímabili hefur matur og drykkur í vísitölu neysluverðs lækkað um 0,7%.

Vörukarfa ASÍ hefur lækkað hjá sjö verslunum frá því í september 2015 þar til nú í febrúar. Hjá sex verslunum hefur vörukarfan hækkað í verði, mest um 7,3% hjá 10/11. Mesta lækkunin á þessu tímabili er 3,8% hjá Hagkaupum og um 2% hjá Nettó, Iceland, Samkaupum-Úrval, Kaupfélagi Skagfirðinga og Kjarval. Á sama tímabili hefur matur og drykkur í vísitölu neysluverðs lækkað um 0,7%.

Á þessu tímabili má sjá verðbreytingar í öllum vöruflokkum, bæði hækkanir og lækkanir. Grænmeti og ávextir hafa lækkað töluvert í verði hjá flestum verslunum og drykkjarvörur hækkað í öllum verslunum nema Kaskó. 

Á meðfylgjandi súluriti má sjá hvernig verslanirnar, sem skoðaðar voru, eru ýmist að hækka eða lækka verð. Mesta hækkunin er 7,3% hjá 10/11, 1,5% hjá Kaskó, 1,1% hjá Samkaupum-Strax, um 0,5% hjá Kaupfélagi Vestur Húnvetninga en minnst hjá Víði og Krónunni.

Mesta lækkunin er 3,8% hjá Hagkaupum, og um 2% hjá Nettó, Iceland, Samkaupum-Úrval, Kaupfélagi Skagfirðinga og Kjarval. Verslunin Bónus lækkar minnst eða um 1%.

 

Breytingar í öllum vöruflokkum
Í töflu inni á heimasíðu ASÍ  (sjá hér)  má sjá verðbreytingar á milli mælinga í einstaka vöruflokkum. Töluverðar verðbreytingar eru í öllum vöruflokkum hjá öllum verslunum. Sem dæmi um hækkanir hefur vöruflokkurinn drykkjarvörur hækkað hjá tólf verslunum af þrettán, mest um 7,3% hjá 10/11, 5,2% hjá Samkaupum-Úrval, 4,8% hjá Nettó, 401% hjá Víði og um 3,7% hjá Hagkaupum.

Mjólkurvörur, ostar og egg hafa hækkað í verði hjá sjö verslunum af þrettán, mest um 11,5% hjá 10/11 og svo um 1,9% hjá Hagkaupum en lækkaði í verði um 3,6% hjá Kaskó og 1,7% hjá Iceland.

Vöruflokkurinn brauð og kornvörur hefur lækkað í verði hjá ellefu verslunum af þrettán mest um 3,8% hjá Krónunni, 3,2% hjá Hagkaupum, 2,9% hjá Bónus og um 2,8% hjá Víði. Mikil verðhækkun var hjá 10/11 eða 9,1%. Verslunin 10/11 er eina búðin sem hefur hækkað verðið í flestum vöruflokkum og eru hækkanirnar miklar. Ýmsar matvörur(sem innihalda m.a. sósur, krydd, fisk og feitmeti) hafa hækkað um 11,6%, sætindi um 10% og mjólkurvörur um 11,5%. Eini vöruflokkurinn sem lækkar í verði eru kjötvörur eða um 0,7%.

 

Verðlagseftirlitið mælir breytingar á verði vörukörfu sem getur endurspeglað almenn innkaup meðalheimilis. Vörukarfa ASÍ inniheldur allar almennar matar- og drykkjarvörur, t.d. brauðmeti, morgunkorn, pasta, kjöt, fisk, grænmeti, ávexti, pakkavörur, kaffi, gos og safa, auk hreinlætis- og snyrtivara. Við samsetningu vörukörfunnar voru hafðar til hliðsjónar vogir Hagstofunnar sem notaðar eru til útreiknings á vísitölu neysluverðs. Vogirnar segja til um hversu stór hluti tilteknir vöruflokkar eru af neyslukörfu meðal heimilis.

Verðbreytingar voru skoðaðar í eftirfarandi verslunum: Í lágvöruverðsverslununum Bónus, Krónunni, Nettó og Iceland; í almennu matvöruverslununum Hagkaupum og Samkaupum-Úrvali, Tíu-ellefu, Samkaupum-Strax og Víði; í verslunum staðsettum á landsbyggðinni Kaskó, Kjarval, Kaupfélagi Skagfirðinga og Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga.

Þess ber að geta að hér eru einungis birtar upplýsingar um verðbreytingar  milli verðmælinga. Ekki er því um beinan verðsamanburð að ræða  þ.e.a.s. hvar ódýrustu vörukörfuna var að finna. Einnig er rétt að athuga að skoðuð eru þau verð sem eru í gildi í verslununum á hverjum tíma og geta tilboð á einstaka vöruliðum því haft áhrif á niðurstöðurnar.

Óheimilt er að vitna í niðurstöðurnar í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.

 

 

 

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com