Skip to main content
AldanVMF

Vörukarfan hefur hækkað í verði í öllum verslunum nema Víði frá því í júní

By September 28, 2015No Comments

Vörukarfa ASÍ hefur hækkað í verði hjá 11 verslunarkeðjum af 12 frá því í byrjun júní (vika 24) fram í september (vika 38). Mesta hækkunin á þessu tímabili er hjá Krónunni, Bónus og Kaupfélagi Skagfirðinga, en karfan lækkaði aðeins í verði hjá Víði. Á tímabilinu má sjá hækkanir í öllum vöruflokkum en áberandi eru hækkanir á mjólkurvörum sem hækka um 3-5% í flestum verslunum.

Vörukarfa ASÍ hefur hækkað í verði hjá 11 verslunum af 12 frá því í byrjun júní (vika 24) fram í september (vika 38). Mesta hækkunin á þessu tímabili er hjá Krónunni, Bónus og Kaupfélagi Skagfirðinga,  en karfan lækkaði aðeins í verði hjá Víði.  Á tímabilinu má sjá hækkanir í öllum vöruflokkum en áberandi eru hækkanir á mjólkurvörum sem hækka um 3-5% í flestum verslunum.

Krónan hækkar mest
Mesta verðhækkunin á körfunni var 3,2% hjá Krónunni, um 2,4% hjá Bónus og Kaupfélagi Skagfirðinga, 1,9% hjá Kaupfélagi Vestur Húnvetninga, 1,3-1,7% hjá Nettó, Iceland, Hagkaupum, Samkaupum-Úrvali, Samkaupum-Strax og Kjarval og um 0,9% hjá 10/11. Verð körfunnar hefur á sama tímabili lækkað um 2,4% hjá Víði og er mesta lækkunin hjá þeirri verslun í vöruflokknum grænmeti og ávextir sem hefur lækkað í verði um 11,3%.

Miklar hækkanir eru annars í öllum vöruflokkum. Mest hækka mjólkurvörur, ostar og egg í öllum verslununum. Mesta hækkunin er um 6,6% hjá Iceland, um 4,6-5,4% hjá Bónus, Krónunni, Samkaupum-Úrval og Kaupfélagi Vestur Húnvetninga, um 2,7-4,1% hjá Nettó, Hagkaupum, Samkaupum-Strax og Víði. Hjá Kjarval og Kaupfélagi Skagfirðinga var hækkunin 1,4% og 0,4% hjá 10/11.

Kjötvörur hækka í flestum verslunum, mesta hækkunin er um 8,3% hjá Krónunni og um 4,4% hjá Kaupfélagi Skagfirðinga, aðrar verslanir hækka minna eða á bilinu 0,2-2,9%. En hjá Hagkaupum stendur verðið í stað og hjá Samkaupum-Úrvali lækkaði verðið.

Sælgæti hækkar í verði
Sætindi eru að hækka í verði eftir að hafa lækkað í kringum áramótin vegna afnáms sykurskattsins.  Er hækkunin á bilinu 1,1-2,8% hjá Bónus, Krónunni, Iceland, Hagkaupum, Samkaupum-Úrvali, 10/11 og Kjarval. Hækkunin er minni hjá Kaupfélagi Skagfirðinga, Samkaupum-Strax og Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga eða um 0,2-0,6%. Í Nettó er lækkun um 0,9% og hjá Víði um 1,8%.

Brauð og kornvörur hækka um 4,7% hjá Iceland og um 2,8% hjá Samkaupum-Strax en minna hjá Krónunni, Nettó, Hagkaupum, Samkaupum-Úrval, 10/11, Kaupfélagi Skagfirðinga og Kjarval. Á sama tíma er lækkun um 1,4% hjá Bónus og um 0,4-0,5% hjá Víði og Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga.

Grænmeti og ávextir hækka í verði hjá 9 verslunum af 12. Mesta hækkunin er um 6,2% hjá Kaupfélagi Skagfirðinga og um 5% hjá Samkaupum-Úrvali, aðrar verslanir hækka minna eða um 0,1-3,9%. Grænmeti og ávextir lækka um 11,3% hjá Víði, um 7% hjá Iceland og um 0,5% hjá Samkaupum-Strax. 

Verðlagseftirlitið mælir breytingar á verði vörukörfu sem getur endurspeglað almenn innkaup meðalheimilis. Vörukarfa ASÍ inniheldur allar almennar matar- og drykkjarvörur, t.d. brauðmeti, morgunkorn, pasta, kjöt, fisk, grænmeti, ávexti, pakkavörur, kaffi, gos og safa, auk hreinlætis- og snyrtivara. Við samsetningu vörukörfunnar voru hafðar til hliðsjónar vogir Hagstofunnar sem notaðar eru til útreiknings á vísitölu neysluverðs. Vogirnar segja til um hversu stór hluti tilteknir vöruflokkar eru af neyslukörfu meðalheimilis.

Sjá nánar á heimasíðu ASÍ.

Verðbreytingar voru skoðaðar í eftirfarandi verslunum: Í lágvöruverðsverslununum Bónus, Krónunni, Nettó og Iceland; í almennu matvöruverslununum Hagkaupum, Nóatúni og Samkaupum-Úrvali, Tíu-ellefu, Samkaupum-Strax og Víði; í verslunum á landsbyggðinni, Kjarval, Kaupfélagi Skagfirðinga og Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga.

Þess ber að geta að hér eru einungis birtar upplýsingar um verðbreytingar  milli verðmælinga. Ekki er því um beinan verðsamanburð að ræða  þ.e.a.s. hvar ódýrustu vörukörfuna var að finna. Einnig er rétt að athuga að skoðuð eru þau verð sem eru í gildi í verslununum á hverjum tíma og geta tilboð á einstaka vöruliðum því haft áhrif á niðurstöðurnar.

Óheimilt er að vitna í niðurstöðurnar í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.

 

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com