Skip to main content
AldanVMF

Vörukarfan hefur hækkað um 7% hjá 10/11 frá febrúar 2015

By March 1, 2016No Comments

Verð á vörukörfu ASÍ hefur hækkað um allt að 7% frá því í febrúar 2015, mest hjá 10/11 en minna hjá Bónus, Krónunni, Iceland og Samkaup-Strax. Á sama tíma lækkar vörukarfan hjá Hagkaupum, Samkaupum-Úrval og Víði.

Verð á vörukörfu ASÍ hefur hækkað um allt að 7% frá því í febrúar 2015, mest hjá 10/11 en minna hjá Bónus, Krónunni, Iceland og Samkaup-Strax. Á sama tíma lækkar vörukarfan hjá Hagkaupum, Samkaupum-Úrval og Víði.

Séu skoðaðar verðbreytingar frá því í febrúar, vika 9 – 2015 og nú í febrúar, vika 6 – 2016 má sjá að vörukarfan hækkar mest um 7% hjá 10/11. Hjá Bónus, Krónunni og Iceland hækkar hún um 2% og um 1% hjá Samkaupum-Strax. Í versluninni Nettó er vörukarfan því næstum á sama verði og í fyrra, en hjá Hagkaupum og Samkaupum-Úrval lækkar vörukarfan um 1%. Mesta lækkunin er 3% hjá Víði. Á þessu tímabili hefur verð á matar- og drykkjarvörum vísitöluneysluverðs hjá Hagstofunni hækkað um 1,9%, frá því í febrúar 2015 þar til í febrúar 2016.

Verðlagseftirlitið mælir breytingar á verði vörukörfu sem gæti endurspeglað almenn innkaup meðalheimilis. Vörukarfa ASÍ inniheldur almennar mat- og drykkjarvörur, t.d. brauðmeti, morgunkorn, pasta, kjöt, fisk, grænmeti, ávexti, pakkavörur, kaffi, gos og safa, auk hreinlætis- og snyrtivara. Við samsetningu vörukörfunnar voru hafðar til hliðsjónar vogir Hagstofunnar sem notaðar eru til útreiknings á vísitölu neysluverðs. Vogirnar segja til um hversu stór hluti tilteknir vöruflokkar eru í neyslukörfu meðalheimilis.

Sjá nánar á heimasíðu ASÍ

Verðbreytingar eru skoðaðar í eftirfarandi verslunarkeðjum: Í lágvöruverðsverslunum Bónus, Krónunni, Nettó og Iceland og í almennu matvöruverslununum Hagkaupum, Samkaupum-Úrval, Víði og klukkubúðunum, 10-11, og Samkaupum-Strax.

Þess ber að geta að hér eru einungis birtar upplýsingar um verðbreytingar í verslunarkeðjunum á milli verðmælinga. Ekki er því um beinan verðsamanburð að ræða  þ.e.a.s. hvar ódýrustu vörukörfuna var að finna. Einnig er rétt að athuga að skoðuð eru þau verð sem eru í gildi í verslununum á hverjum tíma og geta tilboð á einstaka vöruliðum því haft áhrif á niðurstöðurnar. 

 

Óheimilt er að vitna í niðurstöðurnar í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.

 

 

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com