Skip to main content

Vörukarfa ASÍ hefur hækkað í flestum verslunarkeðjum frá því í janúar 2013 þar til nú í byrjun nóvember, nema hjá Hagkaupum og Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga þar sem hún lækkar í verði á milli mælinga.

Vörukarfa ASÍ hefur hækkað í flestum verslunarkeðjum frá því í janúar 2013 (viku 5) þar til nú í byrjun nóvember (viku 44), nema hjá Hagkaupum og Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga þar sem hún lækkar í verði á milli mælinga. Mesta hækkunin var hins vegar 6,4% hjá Iceland. Verðbólgan á sama tíma var 3,8%. Á tímabilinu má sjá miklar hækkanir á mjólkurvörum, kjötvörum og sætindum. Grænmeti og ávextir lækkuðu hins vegar í verði hjá 10 verslunum af 15.

Verð á vörukörfu ASÍ hækkaði eins og fyrr segir mest hjá Iceland um 6,4%, 5% hjá Víði, 4,2% hjá Bónus, 4% hjá Nettó, 3,7% hjá Kaupfélagi Skagfirðinga og 3,4% hjá Samkaupum-Úrvali.

Hjá tveimur verslunum lækkaði karfan á tímabilinu eða um 2,8% hjá Kaupfélagi Vestur Húnvetninga og um 1,2% hjá Hagkaupum.
Hjá Kaskó stóð verðið nánast í stað.

Sjá fréttina í heild hér.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com