Samkvæmt kjarasamningum skal greiða desemberuppbót, þá upphæð skal greiða í einu lagi og ofan á hana reiknast ekki orlof. Full desemberuppbót miðast við 100% starf en reiknast annars miðað við starfshlutfall og starfstíma. Fullt starf telst vera 45 unnar vikur eða meira.

Eftirfarandi upphæðir miðast við fullt starf:
Starfsmenn á almennum markaði fá 78.00 krónur.
Greiða skal fyrir 15. desember.
Starfsmenn ríkisins fá 78.000 krónur.
Greiða skal fyrir 1. desember.
Starfsmenn Steinullar fá 152.953 krónur sem greiðast í desember.
Athugið að enn hefur ekki verið samið fyrir starfsmenn sveitarfélaga. Hver upphæð desemberuppbótar þeirra verður í ár er því óljóst á þessari stundu en hana ber að greiða þann 1.desember. Hafi ekki verið samið fyrir þann tíma skal þann 1.desember greiða sömu upphæð og í fyrra eða 93.500 krónur. Verði síðan samið um hærri uppbót fyrir þetta ár mun leiðrétting verða greidd síðar.
Sama gildir um starfsmenn Hádranga því samningur þeirra byggir á samningi Öldunnar við Launanefnd sveitarfélaga. Þá uppbót skal þó greiða fyrir 21. desember.
Allar frekari upplýsingar fást á skrifstofu félagsins.