Samkvæmt kjarasamningum ber atvinnurekendum að greiða starfsfólki sínu desemberuppbót í byrjun desember ár hvert.
Samkvæmt kjarasamningum ber atvinnurekendum að greiða starfsfólki sínu desemberuppbót í byrjun desember ár hvert. Uppbótin er háð ákveðnum skilyrðum sem varða t.a.m. starfstíma og starfshlutfall á yfirstandandi ári. Desemberuppbót skal greiða í einu lagi og ofan á hana reiknast ekki orlof. Uppbótin er föst krónutala og tekur ekki hækkunum skv. öðrum ákvæðum kjarasamninga.
Full desemberuppbót árið 2020 ( miðað við 100% vinnu)
94.000 kr. hjá þeim sem vinna á almennum vinnumarkaði.
94.000 kr. hjá þeim sem vinna hjá ríki.
118.750 kr. hjá þeim sem vinna hjá sveitarfélögum.