Starfsgreinasamband Íslands stendur fyrir fræðslu- og samráðsdegi fyrir bílstjóra og tækjastjórnendur þann 18. apríl næstkomandi á Hotel Natura í Reykjavík. Tilgangurinn er að trúnaðarmenn eða aðrir fulltrúar greinarinnar komi saman til að fjalla um kjör, aðbúnað og aðstæður sínar í starfi. Nú þegar hafa tæplega 30 manns skráð sig en ennþá eru laus pláss. Áhugasamir eru beðnir um að hafa samband við skrifstofu félagsins.

Dagskrá:
Kl. 10:00 – 11:00 „Af hverju allar þessar reglur?“
Fulltrúi Samgöngustofu fer yfir reglur um endurmenntun, aksturstíma ofl. og ástæður þeirra.
Kl. 11:00 – 12:00 Kjarasamningar bílstjóra og tækjastjórnenda
Kl. 12:00 – 13:00 Hádegismatur
Kl. 13:00 – 14:30 Hópavinna um stöðu bílstjóra og tækjastjórnenda – framtíðarsýn
Kl. 14:30 – 15:00 Kaffi
Kl. 15:00 – 16:00 „Verndum okkur við vinnuna“.
Fulltrúi Vinnueftirlitsins fer yfir nauðsynlegar ráðstafanir til að hlúa að sjálfum sér við vinnu.
Kl. 16:00 – 16:30 Samantekt og fundalok