Umhverfisnefnd ASÍ efnir til fræðslu- og umræðufundar um leiðir til að sporna við neikvæðum afleiðingum loftlagsbreytinga af manna völdum. Fundurinn er haldinn á Grand Hótel Reykjavík, miðvikudaginn 14.maí kl.8-10:15.
LOFTSLAGSBREYTINGAR OG ALMANNAHAGUR
Miðvikudaginn 14. maí kl. 08:00-10:15 á Grand Hótel Reykjavík
Eitt af mikilvægustu málefnum dagsins í dag eru loftlagsbreytingar af manna völdum og neikvæðar afleiðingar þeirra fyrir komandi kynslóðir. Umhverfisbreytingar hafa víðtæk áhrif á efnahags- og atvinnulíf framtíðarinnar og lífskjör almennings. Alþjóðlegur samtakamáttur er eina leiðin til að vinna gegn þessari þróun og þar hefur verkalýðshreyfingin mikilvægu hlutverki að gegna.
Umhverfisnefnd ASÍ efnir til fræðslu- og umræðufundar um leiðir til að sporna við þessari uggvænlegu þróun og um leið að horfa til framtíðar.
Fundurinn er haldinn á Grand Hótel Reykjavík.
Dagskrá hefst stundvíslega kl. 08:30 og lýkur kl. 10:15. Þátttökugjald er 2.500 krónur.
Vinsamlegast skráið þátttöku á fundinn hér.
Dagskrá:
8:00 Morgunverðarhlaðborð
8:30 Setning, Heimir Janusarson, formaður umhverfisnefndar ASÍ
8:40 Stóra myndin – umhverfisleg sjálfbærni, fyrirtæki og
starfsmenn
Lára Jóhannsdóttir, nýdoktor í viðskiptafræðideild
og stjórnarmaður í Lífeyrissjóði starfsmanna Búnaðarbanka
Íslands
9:00 Er siðlaust að menga? Hlutverk verkalýðshreyfingarinnar á
21. öldinni
Þórunn Sveinbjarnardóttir, MA í hagnýtri siðfræði
og fyrrverandi umhverfisráðherra
9:20 Umhverfis- og samfélagsábyrgð fyrirtækja
Finnur Sveinsson, varaformaður Festu og sérfræðingur í
samfélagsábyrgð hjá Landsbankanum
9:45 Pallborðsumræður
Auk frummælanda taka þátt í pallborði:
Drífa Snædal, framkvæmdastóri SGS
Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ
Fundarstjóri: Halldóra Sveinsdóttir, formaður Bárunnar stéttarfélags