Sé smellt á undirflokka kemur í ljós nokkur munur eftir því hvaða undirflokkur er skoðaður. Til dæmis er pasta að meðaltali rúmum 60% dýrara í 10-11 en þar sem það er ódýrast, en gosdrykkir meira en tvöfalt dýrari. Vatnsdrykkir eru 150% dýrari að meðaltali.
Mikill verðmunur á stökum vörum
Þegar flett er á aðra síðu mælaborðsins er hægt að skoða flokkana vöru fyrir vöru og sjá vörum raðað eftir verðbili. Til dæmis er Thule pilsner í dós sú vara sem er með eitt mesta verðbilið; kostar 119kr í Bónus en 449kr í 10-11.
Séu undirflokkar valdir sjást verðbilin á hverri vöru fyrir sig í undirflokkunum. Þegar smellt er á Kaffi, te og kakó sést að mesta verðbilið er á Te&Kaffi French Roast hylkjum, sem eru meira en tvöfalt dýrari í 10-11 en í Bónus.
Fyrir páskana getur borgað sig að gera samanburð á vöruverði. Þannig kostar 500 ml dós af Egils malt á bilinu 219 kr. í Bónus og upp í 499 kr. í 10-11. Kippa af Pepsí í dós getur verið allt að 72% dýrari í Krambúðinni heldur en ódýrari verslunum á borð við Bónus, Krónuna, Nettó og Fjarðarkaup.
Verðkannanir í rauntíma
Vert er að athuga að um stórfellda gagnaöflun er að ræða. Yfir tuttugu þúsund verðpunktar eru í safninu með nokkur þúsund uppfærslum á dag. Gögnin eru yfirlesin, en villur geta slæðst í gagnasafnið. Ábendingar um villur eða vafasamar færslur má senda á verdlagseftirlit@asi.is.