Skip to main content
Stéttarfélag.is

Stöðvum ofbeldi gegn konum

By November 25, 2025No Comments

Stöndum með konum – stöðvum kynbundið ofbeldi !

Í dag, á alþjóðlegum baráttudegi gegn ofbeldi gagnvart konum, stöndum við með UNI Europa Commerce og öllum konum sem mæta ofbeldi, áreitni og mismunun – á vinnustað, heima og í samfélaginu.

Konur eru meirihluti starfsfólks í verslun og þjónustu á Íslandi og í Evrópu. Of margar mæta samt sem áður ofbeldi, kynferðislegri áreitni, hótunum og valdbeitingu frá viðskiptavinum, samstarfsfólki og yfirmönnum. Nýjar tæknilausnir, eins og sjálfsafgreiðslukassar, hafa aukið álagið – oft með því að færa ábyrgð á öryggi og eftirliti yfir á starfsfólk.

Við krefjumst þess að:

  • Ísland staðfesti og innleiði samþykkt nr. 190 Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) um ofbeldi og áreitni í atvinnulífinu.
  • Fyrirtæki geri skýra verkferla og verndaráætlanir gegn áreitni og ofbeldi.
  • Þolendur fái stuðning, trúnað og öruggar leiðir til að tilkynna ofbeldi.

Ofbeldi og áreitni á vinnustöðum eru vinnumarkaðsmál – ekki einkamál.
Saman getum við skapað vinnustaði þar sem allir njóta virðingar, öryggis og jafnréttis.

Sjá frétt á vef UNI Europa

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com