Fjármálaeftirlitið (FME) sendi nýlega dreifibréf á lífeyrissjóði á samningssviði ASÍ og SA þar sem fram kemur sú afstaða eftirlitsins að tilgreind séreign sé flytjanleg frá þeim sjóði sem tekur við iðgjaldi til skyldutryggingar. ASÍ og SA eru ósammála þeirri afstöðu FME.
Fjármálaeftirlitið (FME) sendi nýlega dreifibréf á lífeyrissjóði á samningssviði ASÍ og SA þar sem fram kemur sú afstaða eftirlitsins að tilgreind séreign sé flytjanleg frá þeim sjóði sem tekur við iðgjaldi til skyldutryggingar.
ASÍ og SA eru ósammála þeirri afstöðu FME. Þau hafi samið eins og þeim sé heimilt skv. lögum um hækkun skyldutryggingariðgjalds umfram lögbundið lágmark (12%) og jafnframt um afmarkað val sjóðfélaga um ráðstöfun þess hluta iðgjaldsins til réttindaávinnslu. Val sjóðfélagans, skv. kjarasamningnum, snúist því eingöngu um hvort hækkað iðgjald auki réttindi í samtryggingu eða verði ráðstafað í tilgreinda séreign í vörslu þess lífeyrissjóðs sem viðkomandi á skylduaðild að skv. kjarasamningi.