Eimskip/Herjólfur og Frumherji hafa dregið fyrirhugaðar verðhækkanir á þjónstu sinni til baka eftir tilmæli Alþýðusambandsins. Þessu framtaki ber að fagna og um leið eru önnur fyrirtæki á svarta listanum hvött til að fylgja fordæmi fyrirtækjanna tveggja.
Eimskip/Herjólfur og Frumherji hafa dregið fyrirhugaðar verðhækkanir á þjónstu sinni til baka eftir tilmæli Alþýðusambandsins.
Þessu framtaki ber að fagna og um leið eru önnur fyrirtæki á svarta listanum hvött til að fylgja fordæmi fyrirtækjanna tveggja.
Þegar ASÍ fréttir af hækkun fyrirtækis á vöru eða þjónustu er ábendingin sannreynd, því næst er viðkomandi fyrirtæki sent bréf þar sem það er hvatt til að draga hækkunina til baka. Fyrirtækinu eru gefnir 2-3 dagar til að bregðast við en ef hækkunin er ekki dregin til baka lendir fyrirtækið á svarta listanum.
Svarti listinn lítur nú svona út:
Landsvirkjun
Síminn
Íslandspóstur
World class
Landsbankinn
Pottagaldrar
Orkuveita Reykjavíkur
Lýsi
Nói Síríus
Freyja
Fyrirtæki geta skráð sig á græna listann, en hann er ætlaður þeim fyrirtækjum sem hafa ákveðið að sýna samstöðu og hækka ekki hjá sér verð. Sá listi lengist stöðugt og má skoða hann hér.