Ókeypis námskeið fyrir konur
Viltu láta til þín taka og hafa áhrif á verkalýðsbaráttuna og samfélagið? Skráðu þig þá á námskeiðið Konur taka af skarið sem haldið verður næstkomandi laugardag á Akureyri. Síðasti skráningardagur er í dag.
Námskeiðið er opið öllum konum sem eru félagsmenn stéttarfélaga innan Starfsgreinasambands Íslands eða í starfsmannafélögum sveitarfélaga og er þeim að kostnaðarlausu. Þátttakendur þurfa að skrá sig á námskeiðið og í dag er síðasti skráningardagur.
Námskeiðið hefst kl. 10:00 stendur til kl. 17:00 og er haldið í sal Einingar-Iðju við Skipagötu á Akureyri.
Á námskeiðinu verða eftirfarandi málefni tekin fyrir:
- Að bjóða kynjakerfinu birginn
- Staða verkalýðsbaráttunnar í dag
- Uppbygging verkalýðsfélaganna
- Leiðtogaþjálfun
- Að hafa áhrif og koma sínu á framfæri
- Að starfa í verkalýðshreyfingu
Athugið að skráning þarf að berast í síðasta lagi í dag á netfangið kristinheba@akak.is
eða í síma 461 4006.