Tæplega 10 vikna verkfalli sjómanna er nú lokið en sjómenn samþykktu með naumindum nýjan kjarasamning í gær.
Tæplega 10 vikna verkfalli sjómanna er nú lokið en sjómenn samþykktu með naumindum nýjan kjarasamning í gær. Talningu lauk kl. 21 í gærkvöldi og voru 2.214 manns voru á kjörskrá. Af þeim greiddu 1.189 atkvæði, en þau féllu þannig að 623 voru fylgjandi samningnum, eða 52,4% kjósenda en 558 voru mótfallnir eða 46.9% kjósenda. Átta kjörseðlar voru þá auðir og ógildir.